Tilkynning vegna innheimtu leikskólagjalda v. maí og júní
Leiðrétting á leikskólagjöldum vegna maí og júní mánaða koma til greiðslu í ágúst.
Kæru foreldrar og forráðamenn leikskólabarna í Árborg
Vegna sumarleyfa leikskólanna næst ekki að reikna út rétta kröfu fyrir hvert barn vegna niðurfellinga leikskólagjalda í verkfalli félagsmanna FOSS í maí og júní mánuðum.
Af þeim sökum verður sendur út greiðsluseðill í ágúst fyrir leikskólagjöldum vegna júlí og ágúst mánaða þar sem leiðrétting á leikskólagjöldum í maí og júní verður framkvæmd.
Þeir foreldrar og forráðamenn sem eiga inneign vegna ofgreiddra leikskólagjalda frá endurgreitt í ágúst. Leikskólastjórar sjá um samskipti vegna endurgreiðslunnar.