Tillögur að nafni nýja hjúkrunarheimilisins á Selfossi
Sveitarfélagið Árborg efnir til nafnasamkeppni um nafn á nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi sem HSU opnar í mars nk.
Nafnasamkeppnin er öllum opin og er hægt að senda inn tillögur að nafni í gegnum vefinn Betri Árborg. Þar geta áhugasamir bæði sett fram tillögur með einföldum hætti eða stutt tillögur annarra.
Bæjarráð mun yfirfara þær hugmyndir sem koma fram og að því búnu gera tillögu til Bæjarstjórnar Árborgar að nýju nafni á hjúkrunarheimilið. Birt verða nöfn höfunda þeirra tillagna sem helst komu til álita.
Frestur til að skila inn tillögum er til og með mánudeginum 14.febrúar nk.