Tilnefning til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi árið 2022
Sigríður Magnea Björgvinsdóttir, deildarstjóri upplýsingatæknideildar Sveitarfélagsins Árborgar er tilnefnd til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi árið 2022, sem afhent verða 14. febrúar nk.
Síðan Sigríður Magnea hóf störf hjá sveitarfélaginu í árbyrjun 2020 hefur hún verið driffjöðurin í innleiðingu stafrænna lausna í starfssemi sveitarfélagsins, sem hefur tekið stór framframaskref í átt að skilvirkari og tæknimiðaðri lausnum í þjónustu við íbúa og í innri starfsemi. Þá hefur hún látið til sín taka á samstarfsvettvangi sveitarfélaga.
Nánar um Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi.
Sveitarfélagið óskar Sigríði Magneu til hamingju með tilnefninguna