Tónlistarbekkir í Árborg
Tónlistarbekkir hafa verið opnaðir formlega, en þá má finna á helstu gönguleiðum í Árborg.
Tónlistarbekkir er verkefni sem þróað er af Ingu Margrét Jónsdóttur og var hrundið af stað til að gera tónlistarsögu Árborgar sýnilega og aðgengilega fyrir almenning.
Árborg hefur í gegnum tíðina gefið af sér hæfileikaríkt tónlistarfólk sem hefur látið af sér kveða í íslensku tónlistarlífi. Tónlistarbekkirnir vekja athygli á þessu listafólki og tónlistararfi Árborgar á skemmtilegan og heilsueflandi hátt. Hægt er að finna Tónlistarbekkina á gönguleiðakortinu hér fyrir neðan. Fáið ykkur göngutúr, hlaupið eða hjólið á milli og njótið góðrar tónlistar úr ykkar heimabyggð.
Þeir listamenn sem koma fram á Tónlistarbekkjum í Árborg eru Benny Crespo´s Gang, Kiriyama Family, Kristjana Stefánsdóttir, Mánar, Skítamórall og Steini Spil.
Hönnun og þróun Tónlistarbekkjanna var í höndum Ingu Margrétar Jónsdóttur, viðskiptafræðings og menningarstjóra. Þorgerður Helgadóttir grafískur hönnuður sá um myndefni skiltana.