Umhverfisdeild og Áhaldahúsið hengja upp jólaskraut
Starfsmenn sveitarfélagsins eru í fullri vinnu við að skreyta sveitarfélagið fyrir jólahátíðina.
Þessa dagana vinna starfsmenn Umhverfisdeildar og Áhaldahúss hörðum höndum við að skreyta sveitarfélagið.
Verið er að endurnýja mikið af jólaskrautinu í ár og er stefnt að því að allt stauraskraut verður endurnýjað og bætt á næstu árum. Vegna seinkunnar á móttöku efnis í skrautið, þar sem að sveitarfélagið vinnur allan lokafrágang á stauraskrauti, hefur tafist að endurnýja í öllum byggðarkjörnum.
Ekki þótti smekklegt að blanda saman gömlu og nýju skrauti og var sú ákvörðun tekin að þegar eldra skraut verður tekið niður eftir hátíðarnar, í byrjun næsta árs, verða festingar fyrir nýtt stauraskraut settar fyrir næstu hátíð.
Nýja skrautið sem sveitarfélagið hefur fjárfest í er með lengri endingartíma og verður einnig stærra skraut væntanlegt til að fegra staura sveitarfélagsins.
Hátíðarkveðjur frá starfsfólki Umhverfisdeildar og Áhaldahúss