Umhverfisverðlaun Árborgar 2021
Á degi íslenskrar náttúru, fimmtudaginn 16. september, voru afhentar viðurkenningar umhverfisnefndar til þeirra sem hafa með gróðurhirðu og snyrtimennsku verið til fyrirmyndar í Sveitarfélaginu Árborg.
Veitt voru verðlaun fyrir fallegasta garðinn í Árborg og komu þau í hlut hjónanna Sigríðar Tómasdóttur og Guðmundar Halldórsson að Sunnuvegi 16 á Selfossi. Þau hjónin hlutu einnig sambærilega viðurkenningu árið 1980 og hafa sannarlega ræktað vel sinn garð frá þeim tíma. Garðurinn er einstaklega fallegur og þar má finna fjölær skrautblóm, trjátegundir og matjurtir. Grasflatirnar eru snyrtilegar og rammaðar inn af fallegum fjörusteinum.
Snyrtilegasta fyrirtækið að mati umhverfisnefndar var Hrafntinna Villa, sem er fallegur gististaður í Byggðarhorni sunnan Votmúlavegar. Hanne Smidesang tók á móti verðlaununum fyrr hönd fyrirtækisins sem hún veitir forstöðu.
Loks var veitt viðurkenning til fallegustu götunnar í Árborg. Það var Grenigrund á Selfossi sem að þessu sinni þótti fallegasta gatan og það voru að venju yngsti og elsti íbúinn við götuna sem tóku við verðlaununum fyrir hönd íbúanna. Þessa má til gamans geta að Grenigrund var einnig valin fallegasta gatan árið 2004 og er augljóst að mikil samstaða er meðal íbúa við götuna um að halda umhverfinu snyrtilegu.
Sveitarfélagið Árborg veitir sérstaka viðurkenningu til nýja miðbæjarins
Sigtún þróunarfélag hlaut sérstaka viðurkenningu frá Sveitarfélaginu Árborg, þann 16. september síðastliðinn, fyrir lofsvert framlag til betra samfélags og bættrar ásýndar bæjarins með uppbyggingu nýs miðbæjar Selfoss. Það voru þeir Vignir Guðjónsson og Guðjón Arngrímsson sem veittu viðtöku koparskildi sem steyptur var að þessu tilefni. Leó Árnason var vant við látinn en þremenningarnir hafa staðið í stafni fyrir Sigtún þróunarfélag í því átaki sem fætt hefur af sér þennan fyrsta þátt nýja miðbæjarins.
Það dylst engum hve góðar viðtökur nýi miðbærinn hefur hlotið frá því opnað var í sumar. Það eru ekki bara íbúar Árborgar sem hafa lýst ánægju sinni heldur er framtakið umtalað um land allt. Forvitnir landsmenn hafa verið duglegir að heimsækja mathöllina við Brúartorg og verið ófeimnir við að lýsa ánægju sinni.
Enn er mikið verk að vinna áður en miðbærinn verður fullgerður. Það er engu að síður orðið ljóst að framtakið er einstaklega vel heppnað og hefur jákvæð áhrif á samfélagið og ásýnd Árborgar. Sigtún þróunarfélag og forsvarsmenn þess eru því vel að viðurkenningunni komnir.