Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Árborgar 2026
Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Árborgar afhenti í gær umhverfisviðurkenningar ársins 2026.
Nefndin kallaði eftir tillögum frá íbúum í eftirfarandi flokkum: fallegasti garðurinn, fallegasta fyrirtækið eða stofnun, fallegasta gatan, fallegasta fjölbýlið og framlag til umhverfismála.
Fjöldi tilnefninga kom inn frá íbúum Árborgar. Nefndarmenn fóru yfir tilnefningarnar og kusu á endanum milli þeirra sem komu helst til greina í hverjum flokki.
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, formaður umhverfisnefndar afhenti viðurkenningarnar ásamt Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra og Ágústi Þór Bragasyni, deildarstjóra Þjónustumiðstöðvar Árborgar. Ljósmynd tók Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Viðurkenningarnar skiptast eftirfarandi árið 2026:
Fallegasta gatan er Rauðholt. Við götuna er 4 íbúðarhús og eru íbúarnir 13. Elsti íbúinn er Sigurdór Karlsson, fæddur 23. desember 1942 býr í Rauðholti 9 og sá yngsti er Bjarnþór Grétarsson, fæddur 23. júní 2017 og býr í Rauðholti 7 foreldar hans eru Hugborg Kjartansdóttir og Grétar Magnússon.
Rauðholt er nýuppgerð gata þar sem komið var fyrir gönguleiðum, hjólastígum og gróðri. Hún var valinn því hún er heilt yfir snyrtileg og falleg gata í grónu umhverfi.
Fallegasta fyrirtækið er Sjávargata Villa við Búðarstíg 19c, Eyrarbakka. Þar er rekið ferðaþjónusta með gistiaðstöðu fyrir hópa. Eigandi hússins er Hinrik Þorsteinsson og hefur hann unnið að því að klára húsið síðustu 3 ár. Vann fjölskyldan að þessu með honum og var Jakob Hinrikssson yfirsmiður hússins. Rekstaraðili ferðaþjónustunnar er Aron Hinriksson. Húsið var tekið í notkun síðsumars 2025 og var mikill metnaður settur í að hafa allt hið glæsilegasta, bæði hús, lóð og aðkomu í einstöku umhverfi. Hjá þeim er snyrtilegt og fallegt um að litast og gaman að koma.

Frá v.: Jakob Hinriksson, Aron Hinriksson og Hinrik Þorsteinsson. Ljósmynd: Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Fallegasti garðurinn er Sigtún 7 á Selfossi. Þar búa Þorvarður Hjaltason og Ólafía Sigurðardóttir
Garðurinn var valinn úr hópi margra frambærilega garða en hann hefur vakið athygli fyrir fallega og gróna lóð í eldri hverfum í sveitarfélaginu.

Þorvarður Hjaltason og Ólafía Sigurðardóttir. Ljósmynd: Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Fallegasta fjölbýlið er Tryggvagata 10-12. Húsið var byggt af Jáverk og er nýtt og eru fyrstu íbúar farnir að flytja inn. Allur frágangur lóðar er til mikils sóma og lóðin skemmtileg og vel hirt svo eftir er tekið. Mikill metnaður var settur í að fella hús og lóð að nærliggjandi umhverfi.
Umhverfisviðurkenningu Árborgar hlýtur Örn Óskarsson, formaður Skógræktarfélags Selfoss.
Örn hefur verið í forsvari fyrir Skógræktarfélag Selfoss og uppbyggingu í Hellisskógi í langan tíma. Það er vaxið upp eitt skemmtilegasta fjöregg okkar í sveitarfélaginu í fjölbreyttu útivistarsvæði sem nýtist gestum þess allt árið.
Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með viðurkenningar og eftirtektarverð framlög til umhverfismála.


