Undirritun samnings vegna aukinnar þjónustu
Í dag var undirritaður samningur milli Guðmunds Tyrfingssonar (GT) og Sveitarfélagsins Árborgar þar sem tekinn verður í notkun viðbótarbíll til þess að sinna akstursþjónustu fatlaðra.
Sveitarfélagið er með því að koma til móts við fjölgun íbúa og uppfylla lögbundið hlutverk sitt gagnvart þeim notendum sem rétt eiga á aksturþjónustu í Árborg. Nýr bíll verður tekinn í notkun mánudaginn 24. apríl.
Við undirritun samningsins voru, frá vinstri, Heiða Ösp Kristjánsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarstjóri, Tyrfingur Guðmundsson framkvæmdarstjóri GT og Helena Herborg Guðmundsdóttir sölu- og markaðsstjóri GT.