Uppsagnir hjá Sveitarfélaginu Árborg
Sveitarfélagið Árborg sagði í dag upp ráðningarsamningum við 57 starfsmenn sveitarfélagsins um leið og tilkynnt var um 5% launalækkun æðstu stjórnenda, bæjarstjóra og sviðsstjóra.
Þessar aðgerðir eru liður í hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins sem gripið er til vegna erfiðrar fjárhagsstöðu sem kynnt var íbúum í síðustu viku.
Alls starfa í dag um 1047 manns í 827 stöðugildum hjá Sveitarfélaginu Árborg og þær aðgerðir sem nú hefur verið gripið til snerta öll rekstrarsvið bæjarins og hafa áhrif á um 100 starfsmenn. Uppsagnarfrestur starfsmanna er samkvæmt samningum á bilinu 3 til 6 mánuðir.
Nánari upplýsingar um áhrif uppsagnanna á starfsemi og þjónustu sveitarfélagsins verða kynntar síðar, en á þessum tímapunkti munu stjórnendur sveitarfélagsins ekki tjá sig frekar um málið.
Fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir
bæjarstjóri