Úrslit í jólagluggaleik Árborgar 2021
Fjöldi barna tóku þátt í jólagluggaleiknum 2021 og nú loks eftir langa bið, og nokkrar tilraunir gafst tækifæri til að gleðja vinningshafana.
Þrír þátttakendur voru dregnir úr innsendum lausnum og þau þrjú er hlutu verðlaun fyrir rétta lausn í Jólagluggaleik Árborgar 2021 eru:
Edda María Másdóttir, 7 ára
Halldór Steinar Benjamínsson, 10 ára ásamt systur sinni
Jónas Karl Gíslason, 9 ára
Til hamingju öllsömul
Jólagluggaleikur Sveitarfélags Árborgar gengur út á að frá 1. til 24. desember opnar einn jólagluggi í stofnun eða fyrirtæki í sveitarfélaginu og í hverjum glugga er geymdur einn bókstafur sem setja á inn í þátttökueyðublað. Stafirnir mynda setningu sem í finnast svör við þeim spurningum sem þarf að svara. Þegar búið er að finna lausnina er henni skilað í bókasafn Árborgar Selfossi eða í Sundhöllina á Selfossi. Að lokum eru dregnir út þrír heppnir þátttakendur sem svarað hafa öllum spurningum rétt.
Sveitarfélagið Árborg þakkar fyrirtækjum og stofnunum sem tóku þátt í jólagluggunum 2021 kærlega fyrir þeirra framlag og hlökkum til að endurtaka leikinn í desember.