Úrslit í jólaskreytingasamkeppni Árborgar 2021
Sem fyrr verðlaunaði Árborg fallega skreyttar byggingar í sveitarfélaginu.
Út frá aðsendum tilnefningum voru 3 íbúðarhús, 1 fjölbýli og eitt fyrirtæki sem fengu viðurkenningar fyrir fallegar jólaskreytingar í ár.
Við óskum öllum þeim sem hlutu tilnefningu innilega til hamingju og um leið þökkum við öllum þeim sem tóku þátt í valinu í ár.
Eftirfarandi hlutu flestar tilnefningar
Einbýli
Tröllhólar 3, Selfoss | Jón Karl Jónsson og Anna Dóra Ágústsdóttir
Túngata 50, Eyrarbakki | Sævar Halldórsson og Halla Guðlaug Emilsdóttir
Strandgata 10, Stokkseyri | Gunnar Guðsteinn Gunnarsson Strönd og Hafdís Sigurjónsdóttir Strönd
Fjölbýli
Austurvegur 51, Selfoss | Sigurður Þór Sigurðsson (formaður húsfélags)
Fyrirtæki
Miðbær Selfoss | Guðjón Arngrímsson f.h. Sigtún þróunarfélag
Einnig viljum við þakka eftirfarandi fyrirtækjum sem studdu keppnina með veglegum vinningum.
BYKO
Húsasmiðjan og Blómaval
Dagskráin
Kaffi Krús
Krisp Restaurant
Matarlyst
Bíóhúsið á Selfossi