Útboð
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í :
„Malbiksyfirlagnir 2020 U-2003023 “. Verklok eru 1. ágúst 2020. Verkið felur í sér malbiksyfirlagnir í Árborg.
Fræsa skal samskeyti þar sem nýtt malbik kemur að eldra malbiki. Hækka skal niðurfallsristar, brunnlok og spindilhús eftir því sem við á. Eftir að gert hefur verið við stakar malbiksskemmdir skal leggja malbiksyfirlag á göturnar.
Miðað er við að hjólfarafylla og fylla í smærri malbiksskemmdir s.s. steinlos og minniháttar sig í einni yfirlögn. Límbera skal á allt eldra malbik sem lagt verður yfir.
Helstu magntölur eru:
- Fræsing 130 m
- Malbik, útlögn og líming 9339 m²
- Malbik, efni 1000 tonn
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með mánudeginum 9. mars 2020. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Bárð Árnason skrifstofu Eflu á Suðurlandi í síma 412 6908 , eða með tölvupósti í netfangið bardur.arnason@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila til Eflu verkfræðistofun, Austurvegi 1-5, 800 Selfoss fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 26.mars 2020 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar