Útboð og undirritun samnings við TRS
Síðastliðinn nóvember lauk útboði á hýsingu og rekstri tölvukerfa auk notendaþjónustu fyrir sveitarfélagið.
Unnið var með Ríkiskaupum að rammasamningi í gagnvirku innkaupakerfi(DPS) þar sem öll innkaup fara fram með milligöngu ríkiskaupa á rafrænan máta.
Til að fá aðgang að kerfinu þurfa birgjar að uppfylla skilyrði ríkiskaupa um hæfi birgja og sendu fjögur fyrirtæki inn tilboð. Lægsta tilboðið kom frá TRS og var því tekið.