Vegna íbúafundar og skólaþings á Eyrarbakka og Stokkseyri
Eftir ábendingar sem borist hafa frá íbúum hefur verið ákveðið að breyta tilhögun og fyrirkomulagi íbúaþings og íbúafundar sem fram undan eru á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Ágætu íbúar á Stokkseyri og Eyrarbakka,
Íbúafundur um skólamál | þriðjudaginn 08. mars
Íbúafundur um skólamál, opinn öllum íbúum á Stokkseyri og Eyrarbakka, verður haldinn á Stað, Eyrarbakka, þriðjudaginn 8. mars klukkan 20:00. Þar verða framsögur sveitarfélagsins og íbúa á Stokkseyri og Eyrarbakka, en að því búnu verður orðið gefið laust til umræðna sem áætlað er að geti staðið allt til klukkan 22:00.
Dagskrá 8. mars, fundur um skólamál, Stað Eyrarbakka, opinn öllum íbúum Stokkseyrar og Eyrarbakka:
- Bæjarstjóri, Gísli H. Halldórsson, opnar fundinn,
- Forseti bæjarstjórnar, Helgi Haraldsson, hefur framsögu,
- Sérfræðingar Eflu fjalla almennt um myglu og ástand húsnæðis BES,
- Atli Marel Vokes, sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs, fjallar um vinnu við bráðabirgðalausnir,
- Páll Sveinsson, skólastjóri BES, fer yfir starfið að undanförnu og áskoranir fram undan,
- Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, lýsir sjónarmiðum um skólastarf,
- Nína Dóra Óskarsdóttir, foreldri og íbúi á Stokkseyri,
- Drífa Pálín Geirsdóttir, foreldri og íbúi á Eyrarbakka,
- opnar umræður íbúa, starfsfólks og bæjarfulltrúa.
Skólaþing | þriðjudaginn 15. mars
Skólaþing verður haldið í húsnæði BES á Stokkseyri, þriðjudaginn 15. mars klukkan 20:00 og jafnframt opið öllum. Þar verður framsaga sérfræðings um skólamál og að því búnu vinnustofa með íbúum þar sem RR ráðgjöf mun fá fram hugmyndir sem varða mættu veginn um framtíð skólastarfs Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Skráningar sem þegar hafa verið mótteknar vegna skólaþings munu því gilda þann 15. mars í stað 8. mars.