Vel heppnaðri Hinseginviku lokið í Árborg
Haustið 2021 kom upp hugmynd á fundi Forvarnateymis Árborgar að halda Hinseginviku Árborgar dagana 17. – 23. janúar 2022.
Teymið var sammála um mikilvægi þess að halda slíka viku til að auka fræðslu og sýnileika, skapa umræður og veita stuðning til þeirra sem tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt.
Dagskráin var fjölbreytt en vegna Covid19 var ekki hægt að halda fjölmenna viðburði. Þess í stað stóð Forvarnateymið fyrir TEAMS fræðslu frá Samtökunum ‘78 fyrir alla íbúa sveitarfélagsins og fékk fyrirtæki og stofnanir til að taka þátt í vikunni til að mynda með skreytingum og fræðslu. Börn á unglingastigi horfðu og fræðslumyndband og bækur voru lesnar fyrir leikskólabörn.
Í samstarfi við bókaútgáfuna Sölku og Íslandsbanka var öllum börnum í 1. bekk gefin bókin Vertu þú! sem segir frá litríkum sögum af fjölbreytileikanum og hvetur til fordómaleysis og víðsýni. Bókinni var einnig dreift í alla leikskóla sveitarfélagsins.
Þann 19. janúar var haldinn Regnbogadagur þar sem íbúar voru hvattir til að klæðast fatnaði í regnbogalitum. Fjölmargir tóku þátt en eins og sjá má á myndunum skreyttu börn og starfsfólk skóla og frístundaheimila svæðin sín með fallegum regnbogalistaverkum. Svo voru sumir sem skreyttu meira að segja heimilin sín.
Vikan gekk vonum framar og viljum við þakka öllum sem tóku þátt í að fagna fjölbreytileikanum. Að lokum viljum við benda á Hinseginkvöld félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz og Pakkhússins öll þriðjudagskvöld kl. 19:30. Nánar um það má sjá inn á Instagrammi þeirra.
Hlökkum til að gera enn betur að ári.