Vel heppnuð menningarganga eldri borgara
Þriðjudaginn 18. ágúst skipulagði sveitarfélagið Árborg menningargöngu um gamla bæinn á Selfossi fyrir eldri borgara.
Í sól og blíðu gekk hópurinn undir dyggri leiðsögn Kjartans Björnssonar frá Sýslumannstúninu um Grænuvelli og Fagurgerði yfir á Bankaveg þar sem Sigfús Kristinsson tók á móti hópnum og kynnti sögu húsanna. Þaðan lá leið hópsins yfir á Hlaðavelli þar sem Sigurður Grétarsson upplýsti um sögu húsanna.
Að lokinni göngu, einum og hálfum tíma síðar, bauð Kjartan hópnum upp á langþráðan kaffisopa í garðinum hjá sér.
Gangan var hluti af átaksverkefni sveitarfélagins til að sporna við félagslegri einangrun eldri borgara og þakkar sveitarfélagið öllum þeim sem komu að þessum glæsilega viðburði.