Vel heppnuð þjálfararáðstefna
Sveitarfélagið Árborg hélt á dögunum fyrirlestrakvöld fyrir alla þjálfara og þá sem koma að þjálfun barna og ungmenna í sveitarfélaginu Árborg.
Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og íþróttaráðgjafi, flutti erindi um eðli íþróttastarfsins hér á landi og fjallaði meðal annars um hver tilgangur íþróttastarfsins sé? Hver eru gildi íþrótta og hvert hlutverk þjálfara og stjórnenda sé?
Silja Úlfarsdóttir fyrrum afreksíþróttakona og núverandi afreksíþróttaþjálfari fjallaði um íþróttir og lærdóm, hvað hún hefur lært af íþróttunum og hvernig þær hafa mótað hana í lífinu.
Í lokin var Anna Rut Tryggvadóttir með erindi frá félagsþjónustu sveitarfélagsins og ræddi mikilvægi þess að íþróttafélög eigi í góðri samvinnu og samstarfi við barnavernd. Anna Rut fjallaði um tilkynningarskyldu og hver ábyrgð þjálfara væri varðandi tilkynningarskyldu. Hvaða boðleiðir eru í boði varðandi tilkynningar frá t.d. íþróttafélögum til barnaverndar.
Mætingin var mjög góð og voru þátttakendur leystir út með gjöf frá Stúdíó Sport.
Díana Gestsdóttir lýðheilsufulltrúi Árborgar sá um skipulagningu ráðstefnunnar í samvinnu við Heilsueflandi samfélag.
,,umræðan í samfélaginu undanfarnar vikur hefur líklega ekki farið fram hjá neinum og vildum við nýta tækifærið, grípa boltann og sýna gott fordæmi. Við erum stolt af því faglega starfi sem ungmennafélögin og önnur félög eru að vinna og viljum við leggja okkar af mörkum í að styrkja okkar innviði. Við vitum að þjálfarar eru fyrirmyndir og bera mikla ábyrgð á börnunum í samfélaginu og oftar en ekki eru orð þjálfarans sterkari en orð foreldranna".