Viljayfirlýsing vegna uppbyggingar menningarsalar Suðurlands
Fimmtudaginn 3. september sl. undirrituðu eigendur að Eyravegi 2 á Selfossi sem m.a. hýsir menningarsalinn og Hótel Selfoss viljayfirlýsingu um samstarf vegna uppbyggingu menningarsalar Suðurlands.
Það voru Gísli H. Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar, Ragnar Bogason frá Hótel Selfossi, Arnar Sverrisson frá Turninum 800 ehf. eigandi hótelturnsins fyrir ofan menningarsalinn og Bent Larsen frá LARSEN hönnun og ráðgjöf ehf. eigandi húsnæðisins sem Huppa, Subway og Dominos leigir sem undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf við fyrirhugaða uppbyggingu á menningarsalnum sem staðið hefur í fokheldu húsnæði sl. 40 ár.
Það ríkti bjartsýni í hópnum um framhald verkefnisins en Sveitarfélagið Árborg hefur stofnað byggingarnefnd um fyrirhugaðar framkvæmdir þar sem einnig er fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytisins en Ríkisstjórn Íslands hefur lagt fjármagn á þessu ári í undirbúningsvinnuna og fyrirhugað er aukið framlag vegna framkvæmdanna en salurinn á að þjóna hlutverki menningarsalar fyrir Suðurland. Undirbúningsvinnan er nú í fullum gangi og mun Ari Guðmundsson frá verkfræðistofunni Verkís halda utan um þá vinnu með bygginganefndinni.
Á myndinni eru auk fulltrúa eigenda (standandi, talið frá vinstri): Sveinn Ægir Birgisson, nefndarmaður í eigna- og veitunefnd Árborgar, Kjartan Björnsson, fulltrúi í bygginganefnd og frístunda- og menningarnefnd Árborgar, Guðbjörg Jónsdóttir, formaður bygginganefndar og frístunda- og menningarnefndar Árborgar, Tómas Ellert Tómasson, fulltrúi í bygginganefnd og formaður eigna- og veitunefndar Árborgar og Helgi S. Haraldsson, forseti bæjarstjórnar Árborgar.
Viljayfirlýsing vegna uppbyggingar menningarsalar Sudurlands