Vinnuhópur um leikskólamál skilar skýrslu til fræðslunefndar
Á 6. fundi fræðslunefndar Árborgar, sem haldinn var miðvikudaginn 21. desember sl., skilaði vinnuhópur um leikskólamál greinargerð og niðurstöðum málþings sem haldið var 30. mars 2022 á hótel Selfossi.
Fræðslunefnd þakkaði vinnuhópnum fyrir góða vinnu og fagnaði útkomu skýrslunnar
Samþykkt var að senda skýrsluna til kynningar í leikskólum sveitarfélagsins og kynna hana einnig fyrir íbúum á vefsíðu sveitarfélagsins. Unnið verður áfram með meginniðurstöður úr skýrslunni.
Vinnuhópur um leikskólamál og málþing um leikskólamál 30. mars 2022