Vinnuskóli Árborgar fer af stað
12. júní 2019
Nú er Vinnuskóli Árborgar byrjaður og vinnuhópar lagðir af stað til að fegra og bæta samfélagið okkar í sumar. Verkefni vinnuskólans eru fjölbreytt og koma starfsmenn m.a. að ýmiskonar viðhaldsverkefnum og hreinsun grænna svæða og gatnakerfis Árborgar. Innan vinnuskólans sumarið 2019 er einnig starfræktur hópur sem heitir Grænjaxlinn en hann kemur að fréttablaði vinnuskólans sem kemur út tvisvar yfir sumarið ásamt öðrum skapandi verkefnum.
Heimastöð Vinnuskóla Árborgar er í félagsmiðstöðinni Zelsíuz, Austurvegi 2b á Selfossi.
Yfirmenn vinnuskólans sumarið 2019 eru
Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson, forvarnar- og tómstundafulltrúi og Magnús Sigurjón Guðmundsson, vinnuskólastjóri.
Símanúmer vinnuskólans: 480-1951 og 480-1952
Tölvupóstur vinnuskólans: vinnuskolinn@arborg.is.
Markmið vinnuskólans
- Gefa unglingum kost á vinnu, þjálfun og fræðslu í sumarleyfi sínu
- Fegra og snyrta bæinn okkar
- Kenna unglingum fagleg vinnubrögð og meðferð verkfæra
- Unglingarnir læri virðingu, stundvísi og aga á vinnustað
- Unglingar læri að bera virðingu fyrir umhverfi sínu og bænum sínum
- Viðhalda jákvæðri ímynd um vinnuskólann og gera hana enn jákvæðari
Nánari upplýsingar um Vinnuskóla Árborgar má sjá hér að neðan:
https://www.arborg.is/skolar/vinnuskoli-arborgar/