Vinnuskólinn hefst mánudaginn 13. júní
Við minnum á að vinnuskóli Árborgar, sumarið 2022, hefst næstkomandi mánudag 13. júní.
Foreldrar/forráðamenn ættu að vera búin að fá sendann upplýsingapóst með öllum helstu upplýsingum.
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um vinnuskólann hér
Í stað þess að hafa skólasetningu þá verðum við í vinnuskólanum með opið hús hjá okkur í kvöld, fimmtudaginn 09. júní, milli 19:00 og 21:00.
Þar verða starfsmenn til staðar að svara þeim spurningum og vangaveltum sem upp koma. Við erum staðsett í félagsmiðstöðinni Zelsíuz - Austurvegi 2B (bak við ráðhúsið).
Hvetjum nemendur og aðstandendur til þess að kíkja á okkur!