Vor í Árborg 2020 - tillögur og hugmyndir
Menningar- og bæjarhátíðin „Vor í Árborg 2020″ verður haldin 23.- 26. apríl nk. Skipulagning er á undirbúningsstigi og hvers kyns tillögur að dagskráratriðum og/eða hugmyndum um menningarviðburði eru vel þegnar. Hér með er óskað eftir þátttöku félaga og samtaka, einstaklinga og áhugahópa, fyrirtækja og stofnanna.
Fjölskylduleikurinn, „Gaman- saman sem fjölskylda” verður sem fyrr hluti af hátíðarhöldunum. Sértakt vegabréf verður gefið út með dagskrá hátíðarinnar sem stimplað verður í eftir þátttöku í atburðum og heimsóknum á viðburði. Vegabréfinu er síðan skilað inn eftir hátíðina og eiga þátttakendur möguleika á veglegum vinningum.
Áhugasamir hafi samband við Ólaf Rafnar Ólafsson, atvinnu- og viðburðafulltrúa, olafur.rafnar@arborg.is eða Braga Bjarnason, deildarstjóri frístunda- og menningardeildar, bragi@arborg.is. Nánar upplýsingar í síma 480 1900.
Með von um góðar undirtektir,
Frístunda- og menningardeild Sveitarfélagsins Árborgar