Vor í Árborg 2023
Menningar- og bæjarhátíðin Vor í Árborg var glæsileg að vanda og bauð upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Nýjungar og fastir liðir fylla dagskrá Vor í Árborg
Íbúar og gestir í Árborg nýttu sólardagana í lok apríl og tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá Vor í Árborg, þar sem fastir liðir og nýjir fylltu fjögurra daga dagskrá.
Í ár gátu gestir og gangandi notið fjölda viðburða þá fjóra daga sem hátíðin stóð yfir og þar af voru 14 viðburðir hluti af stimpilleik Árborgar, Gaman saman.
Dregið hefur verið úr stimpilleiknum, Gaman saman
Þrír vinningshafar voru dregnir úr kassa Gaman saman stimpilleiksins í ár. Við óskum Karen Líf, Baldri Loga og Helgu Þorbjörgu hjartanlega til hamingju með sumarvinningana og um leið óskum við öllum íbúum Árborgar gleðilegs sumars!
Sveitarfélagið þakkar öllum sem stóðu að frábærri og fjölbreyttri dagskrá Vor í Árborg í ár!