Vor í Árborg 25.apríl - Sumardagurinn fyrsti
24. apríl 2019
Bæjar- og menningarhátíðin Vor í Árborg verður í gangi næstu daga í Sveitarfélaginu Árborg með fjölbreyttu úrvali viðburða. Hátíðin hefst á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25.apríl kl. 10:00 á opnum fjölskyldutíma í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla (Baula) og í framhaldinu opnar hver viðburðurinn á fætur öðrum og má t.d. nefna kl.11:00 er Opið hús í Litla leikhúsinu við Sigtún sem og í Handversskúrnum að Eyravegi 3. Bókasafnið á Selfossi er opið frá kl. 12:00 - 16:00 og kvenfélag Selfoss verður með opið hús í Selinu við Engjaveg. Á Eyrarbakka verða útileikir kl. 14:00 við Húsið en þar er einnig sögusýningin "Litla Hraun" og kl. 18:30 hefst Hópshlaupið frá Steinskoti á Eyrarbakka.
Á Stokkseyri er opið hús í Menningarverstöðinni, Hafnargötu 9, kl. 14:00 þar sem Elfar Guðni og Valgerður Þóra sýna í Svartakletti og Gallerý Gussi verður sömuleiðis opið frá kl. 14:00 að Strandgötu 10.
Skátafélagið Fossbúar stendur fyrir hátíðardagskrá í tilefni sumardagsins fyrsta sem hefst á skrúðgöngu kl. 13:00 frá Tryggvartorgi við Ölfusárbrú. Hátíðardagskrá verður síðan við félagsheimili skátafélagsins "Glaðheima", Tryggvagötu 36 að skrúðgöngu lokinni. Í boði verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna fram eftir degi.
Opnunarhátíð Vors í Árborg verður síðan haldin í anddyri Hótels Selfoss kl. 17:00 þar sem unglingakór Selfosskirkju syngur, menningarviðurkenning Árborgar 2019 verður afhent, ljós- og málverkasýningar opnaðar ásamt söng frá Karítas Hörpu Davíðsdóttur. Frítt er inn á viðburði á Vori í Árborg nema annað sé sérstaklega tekið fram í dagskrá hátíðarinnar.