Yfirlýsing frá fjölskyldusviði Árborgar
Sveitarfélagið mun fylgja fast á eftir þeim atburðum sem upp hafa komið í fámennum hópi unglinga á síðastliðnum vikum.
Í ljósi atburða síðastliðinna vikna og umfjöllun um mál fámenns hóps unglinga í sveitarfélaginu sem hefur verið að beita ofbeldi undanfarnar vikur vill fjölskyldusvið koma því á framfæri að mál þeirra sé í farvegi innan sveitarfélagsins í góðu samstarfi við aðra þá aðila sem koma að málinu s.s. lögregluyfirvöld.
Leitað er leiða í samstarfi við foreldra að stoppa dreifingu myndbanda sem eru á netmiðlum.
Sveitarfélagið mun fylgja málinu fast eftir í samstilltu átaki barnaverndar, skólasamfélagsins og forvarnahópsins. Sett verður að stað markviss vinna inn á vegum fjölskyldusviðs Árborgar.