Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


14. október 2020

Auglýsing um skipulags- og matslýsingu aðalskipulagsbreytingar - þétting íbúðabyggðar á Selfossi

Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing á fyrirhugaðri breytingu á aðalskipulagi innan þéttbýlis Selfoss.

Skipulagslýsing | Þétting íbúðarbyggðar

Í breytingunni er gert ráð fyrir að um 0,6 hektarar af opnum svæðum innan þéttbýlissvæðis Selfoss verði breytt í íbúðarsvæði og íbúðum fjölgað með því um allt að 20. Byggðamynstur og þéttleiki verði í samræmi við núverandi byggð.

Skipulags- og matslýsingin mun liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi, á skrifstofutíma frá 8:00-12:00 og 12:30-15:00.

Skriflegum ábendingum er hægt að koma á framfæri á staðnum, eða á netfangið skipulag@arborg.is til og með 4.11.2020

Virðingarfyllst,

Sigurður Andrés Þorvarðarson | skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica