Auglýsing um skipulagsmál | Austurbyggð II.
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana:
Austurbyggð II - Deiliskipulag
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 28. apríl 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Austurbyggð II, Selfossi. Megináhersla deiliskipulagsins er að afmarka lóðir og skilgreina byggingarreiti fyrir íbúðarbyggð og setja skilmála fyrir uppbyggingu innan svæðisins. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir einbýlis-, par-, rað- og fjölbýlishúsalóðum.
Austurbyggð II | Deiliskipulag
Austurbyggð II | Greinagerð
Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.
Deiliskipulagstillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 12.05.2021 til og með 23.06.2021. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 23.06.2021.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is
Anton Kári Halldórsson | skipulagsfulltrúi