24. febrúar 2021

Auglýsing um skipulagsmál | Nýibær

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur eftirfarandi deiliskipulagsáætlana.

Nýibær – Deiliskipulagsbreyting

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 19. júní 2019 að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Nýjabæ. Deiliskipulagsbreytingin tekur til gildandi deiliskipulags fyrir hluta jarðarinnar Nýjabæ. Breytingin felst í að lóðum undir íbúðarhúsnæði er fjölgað um 5 og verða því samtals 9. Skilmálum gildandi skipulags er lítillega breytt og samræmt.

Deiliskipulagsbreytingar | Nýibær

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammmi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Deiliskipulagstillögur, eru auglýstar með athugasemdafresti frá 24.02.2021 til og með 07.04.2021. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 07.04.2021.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Anton Kári Halldórsson | skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica