Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


28. júní 2023

Deiliskipulag | Miðtún 1-17

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 21. júní 2023, tillögu að deilliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að Miðtúni 1 - 17 Selfossi. 

Deiliskipulagstilagan tekur til afmörkunar lóða 1 - 17, með áherslu á að lóðum 15 og 17 verði skipt upp í tvær lóðir hvorri, auk skilgreiningar á byggingarheimildum. 

Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036, en þar er Miðtún 1 skilgreint sem samfélagsþjónusta (S7) og Miðtún 3-17 sem íbúðabyggð (íb19). Skipulagssvæðið er 1,9 ha að stærð.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Deiliskipulagstillangan er auglýst með athugasemdafresti frá 28. júní til og með 9. ágúst 2023. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 9. ágúst 2023.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is.

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica