Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


6. nóvember 2023

Deiliskipulagsbreyting | Austurvegur 33 - 35 Selfossi

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 1. nóvember 2023, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga, tillögu að breytingu deilliskipulags fyrir Austurveg 33 - 35 á Selfossi. 

Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036, en þar er svæðið skilgreint sem miðsvæði.

Breyting felur í sér að heimilt verður að reisa allt að 4 hæða hús undir hótelstarfsemi. Þá er nýtingarhlutfalli breytt, fer úr 2.0 í 3.0, sem mun fela í sér að heimilt verður að byggja allt að 5400m2, í stað um 2700m2 áður. 

Þá er gert ráð fyrir að hámarkshæð byggingar hækki úr 10,5m í 13,5m. Bílastæðaþörf mun verða fullnægt með 33 bílastæðum á lóðinni Grænuvellir 8a.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. 

Deiliskipulagstillögur eru auglýstar með athugasemdafresti frá 8. nóvember, til og með 20. desember 2023.

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 20. desember 2023.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica