Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


7. mars 2023

Deiliskipulagsbreyting | Björkustykki

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:

Bæjarstjón Árborgar samþykkti á fundi sínum 1. mars, samræmi við 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagsbreytingum á skilmálum Björkustykkis á Selfossi. 

Breytingin felst í að sett er inn ákvæði í skipulagsskilmála sem heimila geymslukjallara undir einbýlis-, par-, rað- og fjórbýlishúsum þar sem svo háttar. 

Samfara því eru ákvæði um nýtingarhlutfall aðlöguð breytingunni. Einnig er gerð orðalagsbreyting á undirkafla 4.5, Sorpflokkun. Þá er uppfærð tafla um nýtingarhlutfall í kafla 5.1, og undirkaflar frá 5.2.1 - 5.6.6 eru samræmdir töflu. 

Loks er skerpt á ákvæðum er varða gróður, girðingar og skjólveggi í og við lóðarmörk.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. 

Tillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 8. mars til og með 19. apríl 2023.

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 19. apríl 2023.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica