Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


5. febrúar 2024

Deiliskipulagsbreyting | Breyting á legu Selfosslínu

Samkvæmt 36. gr. og 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er kynnt eftirfarandi skipulags- og matslýsing:

Breyting á aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036 - breyting á legu Selfosslínu 1 - Lýsing

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti þann 17. janúar 2024, í samræmi við 30 gr. og 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á gildandi Aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036. 

Samfara væntanlegri breytingu á Aðalskipulagi Árborgar verður kynnt og auglýst breyting á gildandi aðalskipulagi Flóahrepps 2017 - 2029.

Selfosslína | Skipulags- og matslýsing

Breyting á aðalskipulagi/Skipulags- og matslýsing tekur til eftirfarandi: 

Landsnet ráðgerir að Selfosslína 1 (66 kV) verði tekin niður á kaflanum frá núverandi tengivirki á Selfossiað mastri nr. 99 sem er norðan við Hellisskóg, norðan Ölfusár. Í staðinn verði lagður 132 kV jarðstrengur. Nýr jarðstrengur mun í megindráttum fylgja nýrri legu Suðurlandsvegar norðaustan við Selfoss og fara um nýja brú yfir Ölfusá, fylgir þaðan Ölfusá til norðurs. 

Áætluð lengd jarðstrengs frá tengivirki á Selfossi að mastri nr. 99 er um 3,1 km. Núverandi háspennulína og fyrirhugaður jarðstrengur liggja um Sveitarfélagið Árborg og Flóahrepp. 

Breytingin nær til þéttbýlis á Selfossi og dreifbýlis beggja vegna Ölfusár, norðan og austan við Selfoss. Breytingin nær einnig til dreifbýlis í Flóahreppi. 

Í aðalskipulagi Árborgar er Selfosslína 1 sýnd sem jarðstrengur en tekið fram að legan sé ekki útfærð nákvæmlega. Breyta þarf legu jarðstrengsins og setja skipulagsskilmála. 

Í aðalskipulagi Flóahrepps þarf að sýna legu jarðstrengsins og setja skipulagsskilmála.

Ofangreind skipulags- og matslýsing liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Skipulags- og matslýsing er til kynningar í 3 vikur, þ.e. með athugasemdafresti frá 8. febrúar, til og með 29. febrúar 2024. 

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 29. febrúar 2024.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica