Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


29. mars 2023

Deiliskipulagsbreyting | Fagurgerði, Grænuvellir

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 22. mars 2023, tillögu að deiliskipulagsbreytingu að Fagurgerði – Grænuvellir. 

Tillagan afmarkast af götunum Fagurgerði, Árvegi, Hörðuvöllum og Grænuvöllum, auk syðsta hluta afmörkunar deiliskipulags sem nær einnig til miðsvæðis Austurvegar. 

Breytingin felur í sér að lóðinni Fagurgerði 5, er skipt upp í tvær lóðir. Byggingarheimildir á deiliskipulagssvæðinu eru yfirfarnar og breytt að hluta til. Gerð er breyting á greinargerð og uppdrætti. Gildandi deiliskipulag fyrir Grænuvelli og nágrenni var staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda í apríl 2020. 

Breytt deiliskipulag er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036, en þar er svæðið skilgreint sem íbúðarbyggð ÍB18 og miðsvæði M4. Skipulagssvæðið er um 3,2ha að stærð. Byggt hefur verið á flestum lóðum á því svæði sem deiliskipulag Grænuvalla nær yfir. Íbúðir eru á 1 eða 2 hæðum og hús á miðsvæði á 1 - 3 hæðum. Íbúðir eru að hluta til á efri hæðum bygginga á miðsvæði.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. 

Tillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 29. mars til og með 10. maí 2023

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 10. maí 2023.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica