Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


24. janúar 2023

Deiliskipulagsbreyting | Larsenstræti - Merkilandstún

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum 18. janúar 2023, tillögu að deiliskipulagsbreytingu að Larsenstræti Selfossi. 

Lögð var fram tillaga að breytingu á gildandi deiliskipulagi verslunar- og þjónustulóða í Larsenstræti. Tillagan gerir ráð fyrir að lóðir nr. 4, 6, 8, 10, 12 og 14 verði sameinaðar í eina lóð (Larsenstræti 6), og að nýtingarhlutfall sameinaðrar lóðar verði 0,33. 

Deiliskipulagsbreyting | Larsenstræti - Merkilandstún

Aðkoma að lóðunum verður sem fyrr frá Larsenstræti en einnig yrði gert ráð fyrir aðgangsstýrðri aðkomu að sameinaðri lóð frá Gaulverjabæjarvegi. Sú tenging er einungis hugsuð fyrir þungaflutninga og stórar flutningabifreiðar og ekki ætluð almennri umferð minni bíla.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. 

Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 25. janúar til og með 8. mars 2023.

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 8. mars 2023.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica