Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


1. september 2022

Deiliskipulagsbreyting | Skógarflöt L203345

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi deiliskipulagstillögu.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 24. ágút 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina Skógarflöt L203345 (Byggðarhorn 9). 

Skógarflöt | Deiliskipulag 2022

Breytingin felur í sér að stofnuð verði ný lóð, og skilgreindur byggingarreitur auk byggingarheimilda fyrir íbúðarhúsi, allt að 300m2, bifreiða- og vélageymslu, allt að 250m2 og hesthúsi allt að 200m2. Nýtingarhlutfall að 0,15. Mesta þakhæð allt að 8,0m. Þakhalli 0-45 fráður. Sömu skilmálar gilda fyrir núverandi lóð.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. 

Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 31. ágúst 2022 til og með 12. október 2022

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 12. október 2022.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson | skipulagsfulltrúi Árborgar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica