Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


7. nóvember 2022

Deiliskipulagstillaga | Austurvegur, Vallholt, Rauðholt, Reynivellir

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 2.11.2022 að auglýsa í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi fyrir skipulagssvæði sem afmarkast af götunum Austurvegur, Rauðholt, Vallholt og Reynivellir á Selfossi. 

Deiliskipulagstillaga | Austurvegur, Vallholt

Ekki liggur fyrir gildandi deiliskipulag á svæðinu og er markmið deiliskipulags að skilgreina afmörkun lóða og nýtingu þeirra. Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2010 - 2030, þ.e. blanda af íbúðabyggð og verslunar- og þjónustulóðum, og er nýtingarhlutfall lóða innan miðsvæðis skilgreint með nýtingarhlutfall allt að 1.0 - 2.0.

Ofangreind skipulagstillaga liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 9. nóvember 2022 til og með 21. desember 2022. 

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 21. desember 2022.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson | skipulagsfulltrúi Árborgar


Þetta vefsvæði byggir á Eplica