30. nóvember 2022

Deiliskipulagstillaga | Heiðarbrún 6 - 6b

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Árborgar samþykki á fundi sínum 21. nóvember 2022 að auglýsa deiliskipulagstillögu að Heiðarbrún 6 - 6b Stokkseyri. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að lóðin Heiðarbrún 6, sem er 852m2 að stærð, verði parhúsalóð (6 - 6b), og og að heimilt yrði að byggja parhús. Húsið verður á einni hæð með risi. Hámarksvegghæð allt að 3,0m og mænishæð allt að 5,0m. Nýtingarhlutfall allt að 0,2.

Deiliskipulagstillaga | Heiðarbrún 6-6b Stokkseyri

Ofangreind deiliskipulagsbreyting liggur frammmi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Tillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 30.11.2022 til og með 11.01.2023. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 11.01.2023.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson | skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica