Hásteinsvegur 30 – Deiliskipulagsbreyting
Auglýsing um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Árborg
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga deiliskipulagsbreytingar:
1. Hásteinsvegur 30 – Deiliskipulagsbreyting:
Tillagan felur í sér breytingu á deiliskipulagi vegna Hásteinsvegar 30 á Stokkseyri. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja á lóðinni allt að fimm stakstæð tveggja hæða timburhús innan byggingarreita sem koma fram á skipulagsuppdrætti. Fjórir byggingarreitir eru staðsettir í röð við syðri hluta lóðar og einn við norðurhluta nær Hásteinsvegi. Byggingar á syðri hluta lóðar skulu vera tvíhalla með mænisstefnu skv. skipulagsuppdrætti en sú sem stendur á nyrðri hluta má vera tvíhalla eða með valmaþaki. Nota skal byggingarefni sem samræmast heildarhugmyndafræði tillögunar, þ.e. að klæðningar veggja verði úr timbri og þak verði annaðhvort bárujárn í náttúrulegum ál-lit eða timburklæðning. Áhersla skal lögð á lágreista byggð, einföld húsform, náttúruleg efni og að byggðin falli að sögulegu byggðarmynstri og landslagi Stokkseyrar. Ekki eru gerðar breytingu á lóðarstærð eða hámarks nýtingarhlutfalli samkvæmt núverandi deiliskipulagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir heimild fyrir raðhúsi og bílskúrum.
Samkvæmt 2.mgr. 36. Gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða Bæjarstjórnar Árborgar:
Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 – Breyting á skilmálum vegna vatnasvæða V1
Tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Árborgar tekur til skilmála innan kafla um vatnasvæði V1. Breytingu þessari er ætlað að taka sérstaklega til stefnumörkun er varðar svæði ÖN4 (nr.775), ÖN5 (nr.776) og ÖN6 (nr.777) og vernd þeirra vistkerfa sem þar eru í dag.
Núverandi skilmálar: Stærstu ár og vötn, Heimilt er að stunda veiði í ám og vötnum. Áhersla er á vernd vistkerfa og fjölbreytni tegunda.
Breyttir skilmálar: Stærstu ár og vötn, Heimilt er að stunda veiði í ám og vötnum. Áhersla er á vernd vistkerfa og fjölbreytni tegunda. Heimilt er að viðhalda þeim svæði sem skilgreind eru á náttúruminjaskrá með viðeigandi aðgerðum svo sem með fyrirstöðum og/eða stíflum til að hægja á rennsli með það að markmiði að viðhalda og/eða bæta núverandi vistkerfi og vatnsstöðu þessara svæða. Allar slíkar aðgerðir eru háðar umsögn mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar auk Flóaáveitu.
Fylgiskjöl:
Hasteinsvegur-30-dskbr_Askbr.-Vatnasvaedi-V1-greinargerd
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is og á www.skipulagsgatt.is
Skipulagstillagan er í auglýsingu frá 2. júlí 2026, til og með 14. ágúst 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67 á Selfossi, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@arborg.is Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 14. ágúst 2026.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðingarfyllst,
Vigfús Þór Hróbjartsson
skipulagsfulltrúi

