Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


9. apríl 2026

Jórvík 1 – Deiliskipulagsbreyting og Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breyting svæði M10 (Tryggvagata)

Auglýsing um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Árborg

Samkvæmt 1.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga deiliskipulagsbreytingar:

1. Jórvík 1 – Deiliskipulagsbreyting

Larsen hönnun leggur fram uppfærða tillögu breytinga á deiliskipulagi íbúðabyggðar í landi Jórvíkur I. Markmið með deiliskipulagsbreytingu er að bæta nýtingu fjölbýlishúsalóða með fjölgun íbúða, stækkun á byggingareit, bílastæðum fækkað og hámarks vegg / mænishæð er hækkuð. Breytingar: Á fjölbýlishúsalóðum F2 er bílastæðum fækkað niður í 1 stæði á íbúð og hámarks vegg / mænishæð hækkar úr 8 m upp í 10 m. Á lóðunum Fossvík 1, 3 og 5 eru byggingareitir stækkaðir og íbúðum fjölgað í samræmi. Á lóðinni Nýja Jórvík 13, er íbúðum fjölgað. Að öðru leiti gilda eldri samþykktir skilmálar. Nýja Jórvík 13 fjölgar úr 12 íbúðum í 20. Fossvík 1 fjölgar úr 8 íbúðum í 12. Fossvík 3 fjölgar úr 8 íbúðum í 16. Fossvík 5 fjölgar úr 8 íbúðum í 12. Fjölgun samtals úr 36 íbúðum í 62.

Samkvæmt 2.mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst niðurstaða Bæjarstjórnar Árborgar:

Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breyting svæði M10 (Tryggvagata) 

Auglýst er niðurstaða Bæjarstjórnar Árborgar frá fundir dags.25.3.2026, vegna óverulegrar breytingar á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, eftir athugasemdir í afgreiðslu Skipulagsstofnunar dags. 21.8.2025. Tillagan var tekin fyrir á fundi skipulagsnefndar 9.7.2025 og í Bæjarráði 10.7.2025. Niðurstaða Bæjarráðs var auglýst í Lögbirtingablaði og Dagskránni ásamt heimasíðu Árborgar þann 17.7.2025. Skipulagsstofnun gat ekki fallist á að um óverulega breytingu væri að ræða þar sem tillagan gerði ráð fyrir að heildarfjöldi íbúða væri aukinn úr 20-40 í 80 íbúðir. Uppfærð tillaga gerir ráð fyrir að heimild sé fyrir allt að 45 íbúðum í stað 20-40 íbúða.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til auglýsingar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi. Að auki er hægt að nálgast tillöguna á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar á vefslóðinni www.arborg.is og á www.skipulagsgatt.is

Skipulagstillaga nr. 1, er í auglýsingu frá 9. apríl 2026, til og með 22. maí 2026.

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67 á Selfossi, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@arborg.is Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 22. maí 2026.

Fylgiskjal - Deiliskipulagsbreyting í landi Jórvíkur 1

---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,

___________________________

Vigfús Þór Hróbjartsson,

skipulagsfulltrúi

Arborg-Blatt-STORT-Texti-til-hlidar-2362pix_1677665101135


Þetta vefsvæði byggir á Eplica