Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


8. september 2021

Þykkvaflöt 3-9 | Deiliskipulagsbreyting

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 18. ágúst 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Þykkvaflöt 3-9, Eyrarbakka. Deiliskipulagsbreytingin tekur til einbýlishúsalóðanna Þykkvaflöt 3, 5, 7 og 9. Lóðirnar verða sameinaðar í þrjár parhúsalóðir þar sem heimilt verður að byggja 2 íbúðir á einni hæð á hvorri lóð. Að öðru leyti gilda eldri skilmálar deiliskipulags. 

Þykkvaflöt | Deiliskipulagsbreytingar

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammmi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdafresti frá 08.09.2021 til og með 20.10.2021. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 20.10.2021.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is

Anton Kári Halldórsson | skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica