Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


14. mars 2024

Tóftir L165567 | Deiliskipulag frístundahúsa

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst eftirfarandi deiliskipulagstillaga:

Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi 6.3.2024 tillögu að deiliskipulagi í landi Tófta L165567.

Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir 4 frístundahúsum, á tæplega 5ha spildu, sunnan Holtsvegar. Hvert frístundahús verður allt að 40m2 að stærð, með hámakskmænishæð allt að 5m. Gert er ráð fyrir gistingu fyrir allt að 4 manns í hverju húsi. 

Tillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036.

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, Selfossi.

Skipulagstillagan er auglýst með athugasemdafresti frá 13. mars 2024, til og með 24. apríl 2024. 

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 24. apríl 2024.

Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa að Austurvegi 67, 800 Selfossi, eða netfangið skipulag@arborg.is.

Í samræmi við 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er ákvörðun stjórnvalds kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

Virðingarfyllst,
Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi


Þetta vefsvæði byggir á Eplica