Frístundaakstur
Frístundabíllinn ekur alla virka daga frá kl. 13:02 - 16:47 (sjá neðar) og hefur það hlutverk að keyra börn frá frístundaheimilum og skóla í íþrótta- og frístundastarf innan sveitarfélagsins. Öll börn geta nýtt sér frístundabílinn og ekki er innheimt neitt gjald í bílinn.
Frístundaakstur innan Sveitarfélagsins Árborgar heldur áfram skólaárið 2022 - 2023. Aksturskipulagið fyrir leið 2 milli Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakka og Tjarnarbyggðar er áfram hluti af Árborgarstrætó sem er innanbæjarstrætó innan Árborgar og leið 1 innan Selfoss er áfram keyrð í samstarfi við Guðmund Tyrfingsson ehf.
Hagnýtt
Leið 1: Innanbæjar á Selfossi (keyrt af Guðmundi Tyrfingssyni ehf. (GTS))
Leið 2: Eyrarbakki - Stokkseyri - Selfoss (Hluti af Árborgarstrætó, gamla leið 75)
Leið 1 | Frístundaakstur í Árborg veturinn 2022 - 2023
Leið 2 | Innanbæjarstrætó Árborgar
Akstursleiðir í Google maps eru í vinnslu og koma inn fljótlega. Á kortinu verður hægt að sjá leið Árborgarstrætó og frístundaakstur innan Selfoss sérstaklega ásamt því að smella á hverja stoppistöð og sjá brottfarartíma.
Frístundabíllinn keyrir frá 05. september 2022 til og með 9. júní 2023 samkvæmt tímatöflu og er ekið alla virka daga þar á meðal merkta frídaga í grunnskólum líkt og vetrarfrí eða aðra starfsdaga. Ekki er þó ekið í jólafríinu frá 19. desember til 2. janúar og í páskafríinu 3. - 11. apríl 2023.
Það er enginn starfsmaður (utan bílstjóra) í frístundabílnum en foreldrar eru hvattir til að fara fyrstu ferðina með börnunum sínum til að kenna þeim á aðstæður.
Allar ábendingar um frístundaaksturinn eru vel þegnar en hægt er að senda þær ásamt fyrirspurnum á netfangið gunnars@arborg.is eða hafa samband í síma 480 1900.
- Leiðakerfið innan Selfoss er að taka breytingum reglulega til að mæta auknum notendafjölda en allar breytingar eru settar inn hérna á síðunni.