Á að loka?
Öryggi ferðamanna við krefjandi aðstæður | Málþing
Ferðamálastofa og Félag fjallaleiðsögumanna á Íslandi (AIMG) halda miðvikudaginn 18. janúar kl. 10 - 12 málþing um öryggi ferðamanna
Málþingið fer fram á Grand Hótel Reykjavík (Gullteigur) en verður einnig streymt beint og upptaka gerð aðgengileg á netinu.
Yfirskriftin er:
Öryggi ferðamanna við krefjandi aðstæður - Á að loka?
Aðgangur er ókeypis en skráning nauðsynleg.
Ferðaþjónusta á Íslandi byggir að stærstum hluta á þeim áhuga, sem að ferðamenn hafa á íslenskri náttúru
Þekkingarleysi ferðamanna á hættum, sem að geta steðjað, hefur þó stundum leitt til alvarlegra atvika. Einnig er hluti afþreyingar, sem boðið er upp á, byggður á því að njóta náttúrunnar við krefjandi aðstæður, þar sem að hætta getur skapast.
Hættan getur verið af ólíkum toga en meginviðfangsefnið er ávallt það sama: Hvaða aðferðum getum við beitt til þess að tryggja, af fremsta megni, öryggi ferðamanna við krefjandi aðstæður?
Dagskrá:
- 10:05 Garðar Hrafn Sigurjónsson, AIMG - Krefjandi aðstæður / helstu áskoranir
 - 10:15 Róbert Halldórsson, AIMG - Menntun og þjálfun
 - 10:25 Birna María Þorbjörnsdóttir, Safetravel - Forvarnir og viðbrögð
 - 10:40 Flóki Ásgeirsson, lögmaður MAGNA - Túlkun almannaréttar
 - 10:55 Björn Ingi Jónsson, Lögreglan - Reynsla og þekking
 - 11:10 Vatnajökulsþjóðgarður - Tækifæri í Vatnajökulsþjóðgarði: Fagmennskan byrgir brunninn
 - 11:30 Íris Ragnarsdóttir Pedersen, AIMG - Framtíðin
 - 11:40 Fyrirspurnir
 
Sem fyrr segir er aðgangur er ókeypis en þau sem ætla að mæta á Grand Hótel eru beðin að skrá sig á hlekknum hér að neðan.
Streymt verður á Facebook-síðu Ferðamálastofu.
Mynd: Khamkeo Vilaysing á Unsplash
