Afnotaleyfi | Stúdíósport hlaupið 2022
Afnotaleyfið er útgefið samanber lýsingu, afstöðumynda/korta og annarra samskipta sem vísað er í í fylgiskjölum frá leyfishafa.
Um er að ræða sömu leiðir í Stúdíósport hlaupinu og árið 2021
Að mestu er hlaupið á göngustígum en þvera þarf götur. Ræst er á Kirkjuvegi við Heiðaveg kl 10:00. Þetta gildir fyrir fyrir bæði 5 og 10 km hlaupin.
Hlaupa þarf eftir Kirkjuvegi að göngustíg við Hagahverfið og síðan eftir Þóristúni að Tryggvagötu þar sem endað er við verslunina Studíó Sport á Austurvegi.
Tryggvagötu verður lokað milli Austurvegar og Árvegar á meðan hlaupinu stendur. Talað verður við íbúa í götunni líkt og gert var fyrir hlaupið 2021.
Einnig verður haldið Krakkahlaup kl. 12:00 og er hlaupið eftir gangstéttinni við Austurveg, niður Bankaveg og að Tryggvagötu eftir Árveginum.
Allar vegþveranir verða mannaðar starfsmönnum Frískra Flóamanna, sem einnig munu láta lögregluna vita af Stúdíósport hlaupinu 2022.