Álagning fasteignagjalda 2022
Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Árborg fyrir árið 2022 er nú lokið.
Líkt og undanfarin ár verða hvorki sendir út álagningarseðlar né greiðsluseðlar fyrir fasteignagjöldum ársins 2022.
Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á vefsíðunni island.is undir ,,Mínar síður“. Innskráning er með rafrænum skilríkjum. Sem fyrr birtast kröfur vegna fasteignagjalda í netbanka greiðanda og greiðsluseðlar undir rafræn skjöl.
Allar nánari upplýsingar um álagningu fasteignagjalda og innheimtu eru veittar á skrifstofu sveitarfélagsins í síma: 480 1900 eða á netfangið arborg@arborg.is.
Sveitarfélagið Árborg
Ingibjörg Garðarsdóttir | fjármálastjóri