Auglýsing um forval
Sveitarfélagið Árborg lýsir eftir áhugasömum aðilum til þess að taka þátt í forvali um lokað alútboð vegna hönnunar og byggingar annars áfanga Stekkjaskóla á Selfossi.
Í forvalinu verður hæfni væntanlegra bjóðenda metin og þeim sem standast hæfniskröfurnar verður boðið að taka þátt í lokuðu alútboði. Á grundvelli þess lokaða alútboðs verður gerður verksamningur við þann aðila sem býður lægsta verð í verkefnið.
Hæfniskröfur og vægi matsþátta forvalsins:
Tæknileg og fagleg geta til þess að standast þau tímamörk sem sett eru. Vægi: 65%
- Væntanlegur bjóðandi skilar inn tímaáætlun og lýsingu á því hvernig hann mætir tímamörkum.
Tímaáætlunin skal bundin eftirfarandi verkhlutaskilum:
- skil á aðaluppdráttum og umsókn um byggingarleyfi
- uppsteypa sökkla og botnplötu lokið
- afhending byggingareininga á byggingarstað
- húsnæði er fokhelt, e) húsnæði er tilbúið til notkunar
- Væntanlegur bjóðandi leggur fram yfirlýsingu frá fjármálastofnun um að sett verði sérstök trygging fyrir verkskilum.
- Auk þessa skal væntanlegur bjóðandi leggja fram almennar upplýsingar um hæfi bjóðanda sbr. ákvæði laga nr. 120/2016 um opinber innkaup með síðari breytingum.
Tæknileg og fagleg geta til þess að skila þeim gæðum sem óskað er eftir. Vægi: 35%
- Bjóðandi skilar inn gæðalýsingu á meginhlutum mannvirkis. Af þessum 35% fást 20% með því að bjóða
vistvottaðar byggingareiningar og/eða vistvottun á framkvæmd (Svansvottun, BREEAM vottun o.s.frv.)
Um verkið:
Verkið verður unnið í alverktöku og inniheldur eftirfarandi verkhluta:
- Fullnaðarhönnun á skólabyggingu og gerð allra aðal- og séruppdrátta fyrir hana.
Verktaki annast umsókn um byggingarleyfi.
Verkkaupi mun ráða sjálfstæða hönnunar- og byggingarstjóra sem munu sjá um lögboðið eftirlit með hönnun og framkvæmd. - Bygging skólabyggingarinnar.
Um er að ræða u.þ.b. 900 fermetra hús á einni hæð sem standa skal á nýrri lóð í Björkurstykki á Selfossi.
Verklok eru 30. júlí 2021
Skilyrði þátttöku eru nánar útskýrð í forvalsgögnum. Forvalsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 21. október 2020.
Þeir sem hyggjast taka þátt í forvalinu skulu hafa samband við Eirík Stein Búason hjá Verkís hf. á Selfossi með tölvupósti í netfangið verkis.selfoss@verkis.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang sitt og fá forvalsgögnin í kjölfarið send í tölvupósti.
Gögnum þátttakenda skal skila með tölvupósti til Verkís hf., verkis.selfoss@verkis.is fyrir kl. 11.00 miðvikudaginn 4. nóvember 2020. Niðurstöður úr hæfnismati verða kynntar í þeirri sömu viku.
Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar