Auglýsing um forval | Stekkjaskóli - færanlegar kennslustofur
Sveitarfélagið Árborg lýsir eftir áhugasömum aðilum til þess að taka þátt í útboði vegna hönnunar og byggingar færanlegra kennslustofa fyrir Stekkjaskóla á Selfossi.
Stekkjaskóli - Færanlegar kennslustofur, Alútboð nr. 2006052
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Við Stekkjaskóla á að smíða, fullgera og setja niður 10 færanlegar kennslustofur ásamt tengigangi. Heildarstærð kennslustofa og tengigangs er u.þ.b. 1.100 m².
Kennslustofueiningarnar skulu þannig gerðar að hægt sé að fjarlægja einingarnar með krana og setja niður annars staðar, þegar þörf á viðbótar kennsluhúsnæði breytist. Væntanlegur verktaki mun fullhanna einingarnar og afhenda fullbúnar ásamt tengigangi á lóð Stekkjaskóla í Björkurstykki á Selfossi.
Gert er ráð fyrir að bjóðandi smíði bæði kennslustofueiningar og tengigang, annars staðar, og komi með þau og setji niður á undirstöður eftir útfærslu bjóðanda. Einnig er mögulegt að byggja einingarnar og tengigang á staðnum. Nánari lýsingu og útskýringar er að finna í útboðsgögnum.
Lok framkvæmda: 31. júlí 2021
Skilyrði þátttöku eru nánar útskýrð í útboðsgögnum sem verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 15. desember 2020. Þeir sem hyggjast taka þátt í útboðinu skulu hafa samband við Eirík Stein Búason hjá Verkís hf. á Selfossi með tölvupósti í netfangið verkis.selfoss@verkis.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang sitt og fá útboðsgögnin í kjölfarið send í tölvupósti.
Gögnum þátttakenda skal skila til Verkís hf., fyrir kl. 14.00 föstudaginn 15. janúar 2021. Fyrirmælum varðandi skil gagna er nánar lýst í útboðsgögnum.
Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar