Auglýsing um útboð | Stekkjaskóli - húsbygging
Fasteignafélag Árborgar óskar eftir tilboðum í framkvæmdina: Stekkjaskóli, nýr grunnskóli í Árborg - húsbygging, útboð nr. U2006052.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í byggingu fyrsta áfanga nýs skóla í Björkurstykki á Selfossi. Byggingin er í nýju hverfi sem er í uppbyggingu sunnan við núverandi byggð á Selfossi. Byggingin er steypt, tvær hæðir auk kjallara/lagnagangs og er fyrsti áfangi 2500m² að grunnfleti. Mannvirkið er klætt að utan, með steyptri loftaplötu og viðsnúnu þaki. Verkið felst í uppsteypu og fullnaðarfrágangi hússins bæði úti og inni.
Þegar verkið hefst verður búið að framkvæma stóran hluta jarðvinnu (gröftur fyrir húsi og frágangur jarðvegspúða undir undirstöður) en nánar er um það fjallað í útboðsgögnum. Þá hefur verið lokið við að afmarka vinnusvæðið með girðingu.
Helstu stærðir og magntölur eru:
Birt flatarmál | 4.560 m² |
Heildar rúmmál | 14.110 m3 |
Malarfylling | 4.900m3 |
Steypumót | 11.000 m² |
Steinsteypa | 2.300 m3 |
Bendistál | 245.000 kg |
Utanhúss klæðning | 2.040 m² |
Þakfrágangur | 2.330m² |
Gólfdúkur | 3.260m² |
Frárennsli | 1.400m |
Neysluvatn | 1.600m |
Vatnsúði | 2.600m |
Upphaf framkvæmda:
Framkvæmd hefst þegar verkkaupi hefur með formlegum hætti tekið tilboði bjóðanda.
Lok framkvæmda:
Verkinu skal skila í þremur áföngum eins og þeim er lýst í útboðsgögnum, en loka skiladagur verksins er 30. Júní 2022.
Útboðsgögn verða afhend í útboðskerfinu Ajour þar sem bjóðendur geta sótt gögn frá og með
þriðjudeginum 9. febrúar 2021.
Bjóðendur skrá sig inn á vef og hlaða hérna niður gögnum
Sjá nánar um notkunarleiðbeiningar fyrir kerfið
Gögnum þátttakenda skal skila inn rafrænt í útboðkerfinu Ajour fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 17. mars 2021. Fyrirmælum varðandi skil gagna er nánar lýst í útboðsgögnum.
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um.
Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar