Bíllausi dagurinn 22. september
Á bíllausa daginn 22. september verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og í fyrsta sinn með landsbyggðarstrætó.
Bíllausi dagurinn er haldinn í tilefni af evrópsku samgönguvikunni sem er frá 16. - 22. september
Strætó hefur tekið þátt í samgönguvikunni með viðburðinum Bíllausi dagurinn undanfarin ár og í ár ákvað Vegagerðin að taka einnig þátt en Vegagerðin rekur og ber ábyrgð á landsbyggðarstrætó. Með því verður frítt í Strætó á milli byggðarlaga í fyrsta sinn.
Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir fólk til að breyta út af vananum, hvíla bílinn og velja fjölbreyttari og vistvænni ferðamáta.
Sjá leiðarnet landsbyggðarstrætó
Athugið að þetta á ekki við um flugrútur á Bíldudal og Ísafirði