Byggingarréttur til sölu | Móstekkur
Árborg auglýsir til sölu byggingarétt fyrir íbúðarhúsnæði. Um er að ræða 3 lóðir fyrir alls 9 íbúðir. Tvær raðhúsalóðir og eina parhúsalóð.
Stærð lóða er á bilinu 1.198 - 1.530 m2. Um er að ræða vel staðsettar lóðir nærri sterkum þjónustukjörnum
Leitað er að kauptilboðum í lóðirnar frá einstaklingum og/eða lögaðilum sem hyggjast byggja íbúðir í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Svæðið er hluti af uppbyggingarsvæði á landi Bjarkar sem liggur sunnan Suðurhóla og meðfram Eyravegi.
Lóðirnar sem um ræðir eru Móstekkur 70 - 76, 78 - 82 og 84 - 86. Lóðirnar verða tilbúnar til afhendingar 20. janúar 2025.
Tilboð í byggingarrétt á lóðunum ásamt umbeðnum fylgi gögnum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour innan auglýsts skilafrest, sem er kl. 13:00 mánudaginn 18. nóvember 2024.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur er liðinn.
Í kjölfar opnunar verður tilboðsgjöfum sent opnunaryfirlit rafrænt.